Djúpa vöðvakerfi líkamans gleymist oft þegar líkamsrækt er stunduð. Mikilvægt er að gera styrkjandi æfingar fyrir djúpa vöðvakerfið í baki til að undirbúa líkamann fyrir hreyfingu. Þetta á sérstaklega við þá sem eiga við bak- og mjaðmagrindarvandamál að stríða.
Tvískipt vöðvakerfi
Vöðvakerfi í baki má skipta í tvo flokka, annars vegar yfirborðsvöðva og hins vegar djúpa vöðvakerfið. Það er samansett af vöðvunum sem liggja næst hryggsúlunni og eru vöðvarnir sem undirbúa líkamann fyrir hreyfinguna auk þess að gegna stöðugleikahlutverki fyrir hryggsúlur. Þeir sem eru með undirliggjandi bakvandamál geta haft gagn af því að æfa djúpvöðvakerfið, sérstaklega mikilvægt í byrjun þjálfunar.
Grunnþjálfun sem krefst einbeitingar
Þetta eru vöðvarnir sem fólk ætti allt staðan til að ná árangri. Æfingarnar fyrir djúpa vöðvakerfið miðast við að vinna á djúpu kvið- og bakvöðvunum svo og grindarbotni og þind sem til samans mynda eina heild. Mestu skiptir í þessum æfingum að ná inn samspennu milli kviðs og baks sem er kennt á ákveðinn hátt, annað hvort í liggjandi stöðu eða á fjórum fótum.
Markmiðið með æfingunum er að minnka verki með því að styrkja kerfið og auka hreyfistjórnina í baki sem eykur sjálfsöryggi og almenna vellíðan. Sjúkraþjálfarar hafa mikið kynnt nauðsyn slíkra æfinga síðastliðin ár, þar sem hugsunin um að allar æfingar séu unnar út frá miðjunni hefur einnig verið notuð í pilates og yoga.