Til baka í FróðleikurFræðsla

Djúpa vöðvakerfið í baki skiptir máli

Vöðvakerfinu í baki er oft skipt upp í tvo flokka, annars vegar yfirborðs vöðva og hins vegar djúpa vöðvakerfið. Djúpa vöðvakerfið liggur næst hryggsúlu og er skipt í djúpa kviðvöðva, djúpa bakvöðva, grindarbotn og þind sem til samans mynda eina heild. Vöðvarnir virkjast í ákveðinni tímaröð og við eðlilegar aðstæður þá eiga þessir vöðvar að undirbúa líkamann fyrir hreyfingu en auk þess taka þeir þátt í hreyfingum hryggsins. Djúpvöðvakerfið gegnir því lykilhlutverki sem stöðugleikaþáttur fyrir hryggsúlu líkamans.

Styrktarþjálfun

Hægt er að þjálfa líkamann á ýmsa vegu, t.d. með eigin þyngd eða í líkamsræktartækjum. Allt hefur sýna kosti og galla. Styrktarþjálfun í líkamsræktartækjum hefur þann kost að tækin eru sérsniðin að ákveðnum vöðvum eða vöðvahópum. Í flestum tilfellum eru æfingar fyrir yfirborðsvöðva líkamans og þeir sem ekki hafa lært virkja djúpu vöðvana áður en farið er að styrkja vöðvana í tækjum missa af þeirri grunnvinnu sem þarf til að vera með sterkt bak og þar af leiðandi er hættan á því að það myndist ójafnvægi milli yfirborðs- og djúpvöðvakerfis og í framhaldinu skapað vandamál sérstaklega hjá þeim sem eru með undirliggjandi bakvandamál.

Æfingar með eigin þyngd eru mikið notaðar í dag eins og „cross fit“ og „Boot camp“. Æfingarnar eru á margan hátt gagnlegar því þær ganga út á það að virkja marga vöðvahópa í einu. Æfingarnar bjóða upp á fjölbreytileika sem getur aukið hreyfistjórn líkamans en gallinn er sá að ekki er hægt stilla þyngd eins vel og er sumum ofviða.

Bakvandamál

Þeir sem eru með undirliggjandi bakvandmál þurfa sérstaklega að leggja áherslu á að þjálfa upp djúpa vöðvakerfið strax í byrjun þjálfunar til að fá grunn fyrir framhaldið. Þjálfun á djúpa vöðvakerfinu í baki hefur verið rannsakað mikið síðustu ár og hafa niðurstöður sýnt fram á marktæka bætingu hjá ákveðnum hópi bak- og mjaðmargrindarsjúklinga. Markmið æfinganna er að styrkja djúpa vöðvakerfið í baki til að auka almenna færni við störf og leik. Rannsóknir hafa einnig sýnt fram á að æfingarnar fyrir djúpvöðva baksins minnki verki, auki hreyfistjórn í baki og í framhaldinu sjálfsöryggi og almenna vellíðan.

Lokaorð

Það má segja að djúpa vöðvakerfið í baki sé undirstaðan til að ná árangri fyrir bakverkjasjúklinga en einnig fyrir fólk sem vill ná árangri í þjálfun og vera með sterkara bak.

Höfundur greinar – Gísli Sigurðsson